Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 793, 127. löggjafarþing 39. mál: áhugamannahnefaleikar.
Lög nr. 9 18. febrúar 2002.
Þingskjal 793, 127. löggjafarþing 39. mál: áhugamannahnefaleikar.
Lög nr. 9 18. febrúar 2002.
Lög um áhugamannahnefaleika.
1. gr.
Heimil er keppni og sýning á áhugamannahnefaleikum. Enn fremur er heimilt að kenna áhugamannahnefaleika.2. gr.
Heimil er sala og notkun hnefaleikahanska og annarra tækja sem ætluð eru til þjálfunar áhugamannahnefaleika.3. gr.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands setur reglur um áhugamannahnefaleika. Við samningu reglnanna skal leitast við að taka mið af ýtrustu öryggisreglum í nágrannalöndum.4. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 11. febrúar 2002.